leyst.is
Allar hugmyndir

Vinna og skrifstofa

Æfðu kynninguna upphátt og fáðu spurningarnar áður en salurinn spyr

Hladdu inn glærunum eða punktunum, talaðu kynninguna inn eins og þú stæðir fyrir framan salinn og fáðu endurgjöf á uppbyggingu og skýrleika, ásamt þeim spurningum sem áheyrendurnir eru líklegastir til að spyrja og æfingu í að svara þeim.

ChatGPT Claude Gemini Auðvelt

Svona gerir þú

  1. Hladdu glærunum eða punktunum upp í ChatGPT, Claude eða Gemini og límdu skipunina inn.
  2. Ýttu á hljóðnemann í textareitnum og talaðu kynninguna inn sem texta, svo gervigreindin grípi ekki fram í. Taktu tímann á meðan.
  3. Lagaðu efnið eftir endurgjöfinni og fluttu kynninguna aftur, helst daginn eftir.
skipun
Ég á að halda [lengd, til dæmis tíu mínútna] kynningu fyrir [áheyrendur, til dæmis stjórnendur, samstarfsfólk, viðskiptavin eða foreldrafélag] þann [dagsetning]. Markmiðið er að [hvað á að gerast eftir kynninguna, til dæmis að fá samþykki fyrir verkefni eða kynna niðurstöður]. Hér eru [glærurnar / punktarnir mínir]: [skjal eða texti].

1. Lestu efnið og segðu mér í þremur setningum hvað þú heldur að áheyrendur taki með sér. Ef það er ekki það sem ég vil, bentu á hvar boðskapurinn týnist.
2. Næst flyt ég kynninguna upphátt og sendi þér hana sem texta. Svaraðu engu fyrr en hún er öll komin.
3. Gefðu mér þá endurgjöf: hvað var skýrt, hvar ég var óskýr(ur) eða endurtók mig, hvað má stytta eða sleppa og hvort upphafið og endirinn eru nógu sterk. Berðu það sem ég sagði saman við glærurnar og segðu mér hverju ég gleymdi. Nefndu í mesta lagi fimm atriði og byrjaðu á því mikilvægasta.
4. Settu þig í spor áheyrendanna og spurðu mig fimm erfiðustu spurninganna sem þeir gætu spurt, einnar í einu. Eftir hvert svar mitt, segðu mér í tveimur til þremur setningum hvernig ég gæti svarað betur.
5. Endaðu á stuttum minnislista sem ég get haft hjá mér: aðalboðskapurinn, þrjú lykilatriði og svörin við erfiðustu spurningunum.

Skrifaðu kynninguna ekki upp á nýtt. Ég vil æfa að segja þetta með mínum eigin orðum.

Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.

Verkfæri sem henta

Viltu að einhver setji þetta upp fyrir ykkur? Reynt fólk sem við treystum kemur henni í gang hjá ykkur, með reglum og kennslu fyrir starfsfólkið. Sjá hvernig

Póstlisti

5 hugmyndir í pósthólfið á hverjum morgni

Einn stuttur póstur kl. 7. Skipunin fylgir hverri hugmynd. Sjá síðasta póst

5 hugmyndir á hverjum morgni

5 hlutir sem gervigreind getur leyst fyrir þig, í pósthólfið kl. 7.

Einn stuttur póstur á dag. Skipunin fylgir hverri hugmynd, svo þú prófar á fimm mínútum. Sjá síðasta póst

Ókeypis. Afskráning með einum smelli. Persónuvernd

Sendu inn hugmynd

Fékkstu gervigreind til að gera eitthvað gagnlegt, eða sástu einhvern gera það? Segðu okkur frá. Við lesum allt yfir áður en það birtist og getum þín ef þú vilt.