Hladdu upp bankayfirlitum og listum yfir ógreidda reikninga og fáðu yfirlit yfir inn- og útstreymi síðustu mánaða og spá fyrir þá næstu.
Hér eru bankayfirlit fyrirtækisins fyrir síðustu [X] mánuði, listi yfir útistandandi sölureikninga og listi yfir ógreidda reikninga frá birgjum.
1. Flokkaðu færslurnar í inn- og útstreymi eftir tegund: sala, laun og launatengd gjöld, húsaleiga, birgjar, skattar og gjöld, lán og annað.
2. Sýndu greiðsluflæði hvers mánaðar í töflu og línuriti og bentu á mánuði sem skera sig úr.
3. Gerðu spá fyrir næstu þrjá mánuði út frá endurteknum greiðslum, útistandandi reikningum og gjalddögum, og sýndu forsendurnar.
4. Merktu þær vikur þar sem staðan gæti orðið þröng og listaðu sölureikninga sem eru komnir fram yfir gjalddaga.
Ekki giska á gjalddaga skatta eða opinberra gjalda. Spurðu mig um þá eða merktu þá sem óþekkta.
Þetta er yfirsýn til undirbúnings, ekki bókhald eða fjármálaráðgjöf. Berðu niðurstöðurnar undir bókarann þinn.
Bentu fulltrúa á möppu með myndum og PDF-skjölum og fáðu töflu með dagsetningu, seljanda, upphæð og VSK.
Í þessari möppu eru kvittanir og reikningar frá [mánuður].
Lestu hvert skjal og búðu til Excel-töflu með: dagsetningu, seljanda, kennitölu seljanda ef hún sést, lýsingu, upphæð án VSK, VSK-upphæð, VSK-þrepi, heildarupphæð og skráarheiti.
Leggðu til bókhaldsflokk fyrir hverja færslu.
Merktu sérstaklega skjöl sem eru ólæsileg, vantar VSK-númer á eða líta út fyrir að vera tvítekin.
Ekki giska á tölur sem þú sérð ekki.
Þetta sparar innslátt en kemur ekki í stað bókara. Farðu yfir merktu færslurnar áður en þú sendir töfluna áfram.
Berðu saman sölureikninga, kostnaðarreikninga og bankayfirlit tímabilsins og finndu það sem stemmir ekki áður en skýrslu er skilað.
Hér eru þrjú skjöl fyrir VSK-tímabilið [mánuðir]: listi yfir útgefna reikninga, listi yfir kostnaðarreikninga og bankayfirlit.
1. Paraðu saman reikninga og bankafærslur.
2. Listaðu það sem stemmir ekki: greiðslur án reiknings, reikninga án greiðslu og upphæðir sem passa ekki.
3. Taktu saman útskatt og innskatt eftir skattþrepum.
4. Skrifaðu lista yfir spurningar til bókarans míns.
Sýndu útreikninga. Þetta er undirbúningur, ekki endanlegt uppgjör.
Láttu lesa úthlutunarreglur og matsviðmið sjóðsins og skrifa fyrstu drög sem svara hverju viðmiði fyrir sig.
Ég ætla að sækja um styrk hjá [sjóður, t.d. Tækniþróunarsjóði eða uppbyggingarsjóði landshlutans]. Hér eru úthlutunarreglur og matsviðmið: [skjal eða slóð]. Hér er lýsing á verkefninu: [texti].
1. Taktu saman hvað sjóðurinn metur og hvaða vægi hvert viðmið hefur.
2. Spurðu mig þeirra spurninga sem þú þarft svör við til að umsóknin verði sterk.
3. Skrifaðu drög að hverjum kafla umsóknarinnar og merktu hvaða matsviðmiði hver málsgrein svarar.
4. Bentu á veikustu hluta umsóknarinnar og hvernig má styrkja þá.
Búðu til svarasafn úr eldri póstum og skilmálum og fáðu drög að svörum á íslensku og ensku sem starfsmaður samþykkir.
Hér eru skilmálar okkar, verðskrá og 30 dæmi um fyrirspurnir og svör frá síðustu mánuðum.
1. Flokkaðu fyrirspurnirnar og búðu til svarasafn með einu góðu svari við hverri tegund, á íslensku og ensku, í okkar tón.
2. Þegar ég lími inn nýja fyrirspurn: skrifaðu drög að svari sem byggir eingöngu á skilmálunum og verðskránni.
3. Ef svarið er ekki að finna í gögnunum, segðu það og leggðu til að málið fari til starfsmanns.
Lofaðu aldrei endurgreiðslu eða afslætti nema skilmálarnir segi það.
Fáðu mánaðaráætlun með færslum, myndahugmyndum og textum sem taka mið af íslenskum tyllidögum og árstíðum.
Við erum [tegund fyrirtækis] á [staður] og markhópurinn er [lýsing]. Við notum [Facebook / Instagram / TikTok].
Gerðu efnisáætlun fyrir [mánuður] með þremur færslum á viku.
Taktu mið af íslenskum frídögum, tyllidögum og árstíð.
Fyrir hverja færslu: dagsetning, markmið, hugmynd að mynd eða myndbandi og texti á eðlilegri íslensku, án klisja og án ofnotkunar á tjáknum.
Hafðu að hámarki fjórðung færslnanna beina sölu.
Láttu fulltrúa skoða vefi keppinauta og taka saman vöruframboð, verð og áherslur í eina töflu.
Við seljum [vöru / þjónustu] á Íslandi. Helstu keppinautar eru [listi] en finndu fleiri ef þeir eru til.
Skoðaðu vef hvers keppinautar og taktu saman í töflu: vöruframboð, verð sem birt er opinberlega, markhóp, helstu söluskilaboð og afhendingar- og skilaskilmála.
Skráðu slóð við hvert atriði og dagsetninguna í dag.
Dragðu svo fram þrjú atriði þar sem við stöndum betur og þrjú þar sem við stöndum verr.
Notaðu aðeins upplýsingar sem eru opinberar á vefnum.
Lýstu starfinu eins og það er í raun og fáðu auglýsingu sem hentar á Alfreð, einfaldan matskvarða og sömu spurningar fyrir alla umsækjendur.
Við erum [tegund fyrirtækis] með [fjöldi] starfsmenn og ætlum að ráða [starfsheiti] í [starfshlutfall]. Helstu verkefni: [listi]. Það sem við bjóðum: [vinnutími, laun eða launabil, annað].
1. Spurðu mig þess sem vantar til að auglýsingin verði skýr.
2. Skrifaðu auglýsingu, að hámarki 200 orð: verkefni, hæfniskröfur sem skipta raunverulega máli, hvað við bjóðum og hvernig sótt er um. Engar klisjur.
3. Skiptu kröfunum í nauðsynlegar og æskilegar og búðu til einfaldan matskvarða.
4. Skrifaðu átta viðtalsspurningar sem tengjast verkefnunum og eru eins fyrir alla umsækjendur.
Bentu mér á orðalag sem gæti fælt fólk frá eftir kyni, aldri eða uppruna, og á spurningar sem ekki er við hæfi að spyrja í viðtali.
Taktu fram hvað ég þarf að sannreyna í lögum eða kjarasamningi.
Gervigreindin hjálpar þér að orða auglýsinguna og undirbúa viðtölin. Ekki hlaða upp umsóknum eða ferilskrám umsækjenda nema þú hafir gengið úr skugga um að það samræmist persónuverndarreglum.
Skrifaðu niður það sem viðskiptavinurinn bað um og fáðu snyrtilegt tilboð með verklýsingu, sundurliðuðu verði, fyrirvörum og gildistíma.
Ég rek [iðngrein / þjónusta] og var að skoða verk hjá viðskiptavini. Punktarnir mínir: [texti]. Verðin mín: [tímagjald, efnisverð, akstur].
Skrifaðu tilboð á íslensku:
1. Stutt lýsing á verkinu og því sem er innifalið.
2. Það sem er ekki innifalið, skýrt orðað.
3. Sundurliðað verð: vinna, efni og annað, án VSK og með.
4. Verktími, greiðsluskilmálar og hve lengi tilboðið gildir.
5. Fyrirvarar, til dæmis um það sem kemur fyrst í ljós þegar verkið er hafið.
Reiknaðu aðeins út frá tölunum sem ég gef upp og sýndu útreikninginn. Ef magn eða verð vantar, spurðu mig.
Ekki giska á VSK-þrep. Spurðu mig hvaða þrep á við.
Farðu yfir allar tölur áður en tilboðið fer út. Tilboð sem viðskiptavinur samþykkir getur bundið þig.
Hladdu upp lista yfir útistandandi reikninga og fáðu drög að pósti til hvers viðskiptavinar, í tón sem hæfir því hve langt er liðið frá eindaga.
Hér er listi úr bókhaldskerfinu yfir ógreidda reikninga: viðskiptavinur, reikningsnúmer, upphæð, gjalddagi og eindagi.
1. Raðaðu listanum eftir því hve langt er liðið frá eindaga og taktu saman heildarupphæð í hverjum flokki.
2. Skrifaðu drög að pósti til hvers viðskiptavinar: vinsamlega áminningu ef stutt er liðið, ákveðnari ítrekun ef lengra er liðið. Taktu fram reikningsnúmer, upphæð og eindaga.
3. Merktu viðskiptavini sem skulda fleiri en einn reikning og leggðu til að ég hringi frekar í þá.
Ekki senda neitt. Ekki nefna dráttarvexti, innheimtukostnað eða lögfræðiinnheimtu nema ég biðji um það. Fullyrtu ekkert um reglur, upphæðir eða fresti, heldur ekki um hvernig helgar eða frídagar hafa áhrif á eindaga.
Reglur gilda um innheimtuviðvaranir, dráttarvexti og innheimtukostnað. Fáðu ráð hjá bókara eða innheimtuaðila áður en þú gengur lengra en að senda vinsamlega áminningu.
Hladdu upp útboðslýsingunni og fáðu yfirlit yfir hæfiskröfur, fylgigögn, fresti og matsviðmið, svo tilboðinu verði ekki vísað frá vegna formsatriðis.
Hér eru útboðsgögn fyrir [heiti útboðs] hjá [kaupandi]. Við erum [tegund fyrirtækis] með [fjöldi] starfsmenn.
1. Taktu saman á einni síðu: hvað er boðið út, samningstíma, helstu dagsetningar og hvernig tilboðum er skilað.
2. Gerðu gátlista yfir allt sem þarf að fylgja tilboðinu, með vísun í grein og blaðsíðu: hæfiskröfur, vottorð, yfirlýsingar, tryggingar og eyðublöð.
3. Lýstu því hvernig tilboðin verða metin og hvað vegur þyngst.
4. Bentu á kröfur sem við gætum átt erfitt með að uppfylla og á það sem er óljóst, og skrifaðu drög að fyrirspurn til kaupanda um það.
Vitnaðu aðeins í það sem stendur í gögnunum. Ef dagsetning eða krafa finnst ekki, segðu það í stað þess að giska.
Gátlistinn kemur ekki í stað þess að lesa gögnin. Staðfestu alla fresti og kröfur í útboðsgögnunum sjálfum og í viðaukum sem kaupandi kann að birta síðar.
Lýstu því sem þú ætlar að gera og fáðu skrefin í réttri röð: rekstrarform, skráningar, leyfi og spurningarnar sem bókari þarf að svara.
Ég ætla að hefja rekstur: [lýsing] á [staður]. Ég reikna með um [upphæð] kr. í tekjur fyrsta árið og verð [ein(n) / með starfsfólk]. Ég er [í launaðri vinnu samhliða / ekki í annarri vinnu].
1. Berðu saman að reka þetta á eigin kennitölu og í einkahlutafélagi: ábyrgð, kostnað, umsýslu og skattlagningu í grófum dráttum.
2. Gerðu gátlista í tímaröð yfir skráningar og tilkynningar sem gætu átt við mig, til dæmis hjá fyrirtækjaskrá, á VSK-skrá og launagreiðendaskrá, og yfir leyfi sem rekstur af þessu tagi þarf.
3. Settu við hvert atriði slóð á síðu viðkomandi stofnunar þar sem reglan eða eyðublaðið er.
4. Skrifaðu lista yfir spurningar sem ég á að fara með til bókara.
Ekki nefna upphæðir, hlutföll eða fresti nema þú getir vísað á síðuna þar sem það stendur. Ef þú ert ekki viss, segðu það.
Reglur um skráningu, skatta og leyfi breytast. Notaðu listann til að undirbúa þig og fáðu hann staðfestan hjá Skattinum eða bókara áður en þú byrjar.
Fyrir einyrkja og verktaka: farðu úr laununum sem þú vilt hafa yfir í útselt tímagjald, að teknu tilliti til gjalda, frídaga og tíma sem enginn borgar fyrir.
Ég er sjálfstætt starfandi [starfsgrein] og vil reikna út útselt tímagjald. Ég vil hafa um [upphæð] kr. í laun á mánuði fyrir skatt.
Fastur kostnaður á mánuði: [húsnæði, tæki, hugbúnaður, tryggingar, bókari, bíll].
Ég reikna með [X] vikum í frí og veikindi á ári og að [X]% vinnutímans fari í annað en útselda vinnu.
1. Spurðu mig þess sem vantar.
2. Listaðu gjöld sem launþegi sér ekki en ég þarf að standa skil á, til dæmis tryggingagjald og iðgjöld í lífeyrissjóð. Flettu hlutföllunum upp á vef Skattsins og lífeyrissjóðsins míns og settu slóð við hverja tölu. Ef þú finnur tölu ekki, skildu reitinn eftir auðan.
3. Settu útreikninginn upp í töflu, skref fyrir skref, og sýndu tímagjald án VSK og með.
4. Sýndu hvernig tímagjaldið breytist ef ég sel fleiri eða færri tíma á mánuði.
Útreikningurinn er til viðmiðunar. Berðu forsendurnar, sérstaklega gjöld og reiknað endurgjald, undir bókara áður en þú ákveður verð.
Hladdu upp vörulistanum og fáðu lýsingar á íslensku og ensku í sama tón, tilbúnar til að lesa inn í vefverslunarkerfið.
Hér er vörulistinn okkar í Excel: vörunúmer, heiti, efni, stærð, litur og verð.
Hér eru þrjár lýsingar sem við erum ánægð með og sýna tóninn: [texti].
1. Skrifaðu stutta fyrirsögn og 40–60 orða lýsingu á íslensku fyrir hverja vöru. Byrjaðu á því sem kaupandinn vill vita, ekki á lýsingarorðum.
2. Skrifaðu enska útgáfu sem er ekki orðrétt þýðing.
3. Skilaðu sama Excel-skjali með nýjum dálkum fyrir fyrirsögn og lýsingu á báðum tungumálum.
4. Listaðu vörur þar sem upplýsingar vantar til að skrifa góða lýsingu.
Notaðu aðeins upplýsingar úr listanum. Ekki fullyrða neitt um eiginleika, uppruna, endingu eða umhverfisáhrif sem stendur ekki þar.
Safnaðu umsögnum af Google, Tripadvisor eða bókunarsíðum í eitt skjal og fáðu yfirlit yfir það sem fólk hrósar og kvartar undan, ásamt drögum að svörum.
Hér eru umsagnir um [fyrirtæki] frá síðustu [X] mánuðum, afritaðar af [Google / Tripadvisor / bókunarsíðu].
1. Flokkaðu þær eftir efni (þjónusta, verð, biðtími, hreinlæti, aðgengi og svo framvegis) og teldu hve oft hvert atriði er nefnt, jákvætt og neikvætt.
2. Dragðu fram þrennt sem við ættum að halda áfram að gera og þrennt sem við ættum að laga fyrst.
3. Skrifaðu drög að svari við hverri umsögn sem ekki hefur verið svarað, á sama tungumáli og hún er skrifuð á. Stutt, persónulegt og án staðlaðra frasa.
Í svörum við kvörtunum: ekki rengja viðskiptavininn, ekki lofa endurgreiðslu eða afslætti og ekki nefna starfsfólk með nafni.
Ég les svörin yfir og birti þau sjálf(ur).
Gefðu upp opnunartíma, mönnunarþörf og óskir hvers og eins og fáðu tillögu að vaktaplani ásamt lista yfir árekstra sem þú þarft að leysa.
Ég þarf vaktaplan fyrir [tímabil] á [vinnustaður]. Opið er [dagar og tímar] og á hverri vakt þarf [fjöldi og hlutverk].
Starfsfólk, með upphafsstöfum: [upphafsstafir, starfshlutfall, dagar sem viðkomandi getur ekki unnið, óskir].
Reglur sem planið á að virða: [t.d. hámarkslengd vakta, hvíld á milli vakta, frídagar, enginn með fleiri en X helgar í röð].
1. Settu planið upp í töflu með dögum í dálkum og starfsfólki í línum.
2. Taktu saman tímafjölda hvers og eins og berðu hann saman við starfshlutfallið.
3. Listaðu vaktir sem ekki tókst að manna og óskir sem ekki var hægt að verða við.
4. Sýndu hvar planið brýtur reglurnar mínar, ef það gerir það einhvers staðar.
Ekki búa til reglur um hvíldartíma eða vaktaálag upp á eigin spýtur. Bentu mér frekar á hvað ég þarf að sannreyna í kjarasamningnum.
Vinnutími, hvíld og vaktaálag ráðast af lögum og kjarasamningi. Berðu planið saman við kjarasamninginn áður en þú birtir það og notaðu upphafsstafi í stað nafna.
Láttu fulltrúa fletta nýjum viðskiptavini upp í fyrirtækjaskrá og síðasta ársreikningi og taka saman það sem skiptir máli áður en þú selur honum í reikning.
Fyrirtækið [heiti og kennitala] vill kaupa af mér [vöru / þjónustu] fyrir um [upphæð] kr. með greiðslufresti.
Flettu því upp í opinberum gögnum og taktu saman:
1. Úr fyrirtækjaskrá Skattsins: rekstrarform, skráða starfsemi og VSK-númer ef það kemur fram.
2. Úr síðasta ársreikningi sem þú hefur aðgang að: tekjur, afkomu, eigið fé og skuldir, og hvaða ár hann nær yfir.
3. Það sem ég ætti að staldra við, til dæmis ef nýlegan ársreikning vantar eða eigið fé er neikvætt.
4. Þrjár spurningar sem ég get lagt fyrir viðskiptavininn og hvaða greiðsluskilmála kæmi til greina að bjóða.
Skráðu slóð og dagsetningu við hvert atriði. Ef eitthvað finnst ekki, segðu það.
Leitaðu aðeins að upplýsingum um félagið sjálft, ekki um eigendur þess eða stjórnarmenn sem einstaklinga.
Þetta er fyrsta skoðun á opinberum gögnum, ekki lánshæfismat. Ársreikningur lýsir liðnu ári og segir lítið um stöðuna í dag.
Flyttu sölugögn út úr kassakerfinu eða vefversluninni og fáðu greiningu eftir vörum, vikudögum og tímum dags sem nýtist við ákvarðanir um opnunartíma, innkaup og verð.
Hér er útflutningur úr [kassakerfi / vefverslun] fyrir [tímabil]: dagsetning, tími, vara, magn, verð og afsláttur. Innkaupsverð [fylgir / fylgir ekki].
1. Lýstu gögnunum fyrst: tímabili, fjölda færslna, eyðum og því sem lítur út eins og villur.
2. Sýndu sölu eftir vikudögum og klukkustundum og bentu á tíma þar sem lítið selst miðað við opnunartíma.
3. Raðaðu vörum eftir tekjum og, ef innkaupsverð fylgir, eftir framlegð. Merktu vörur sem seljast nánast ekkert.
4. Sýndu hvaða vörur eru oft keyptar saman.
5. Leggðu til þrennt sem ég gæti prófað næsta mánuðinn og hvernig ég mæli hvort það virkar.
Sýndu útreikninga og taktu fram þar sem gögnin eru of lítil til að draga ályktun.
Ef nöfn eða kennitölur viðskiptavina eru í skránni, notaðu þau ekki.
Hladdu upp rekstrartölum síðasta árs og fáðu tólf mánaða áætlun í Excel með þremur sviðsmyndum og forsendum sem þú getur breytt sjálf(ur).
Hér er rekstraryfirlit síðasta árs eftir mánuðum úr bókhaldskerfinu: tekjur og gjöld eftir liðum.
Það sem ég veit um næsta ár: [verðbreytingar, nýir viðskiptavinir, ráðningar, fjárfestingar, leiga].
1. Lýstu fyrst því sem þú sérð: árstíðasveiflum, stærstu kostnaðarliðum og því sem lítur út eins og einskiptisliðir. Spurðu mig um það sem er óljóst.
2. Settu upp áætlun fyrir næstu 12 mánuði í Excel, mánuð fyrir mánuð, með sömu liðum.
3. Hafðu forsendurnar á sérstökum flipa (söluvöxtur, verðhækkanir, launabreytingar) og láttu áætlunina reiknast út frá þeim með formúlum.
4. Gerðu þrjár sviðsmyndir, varfærna, líklega og bjartsýna, og sýndu afkomu hvers mánaðar í hverri þeirra.
5. Bentu á þá mánuði sem eru tæpastir og hvaða forsenda vegur þyngst.
Ekki giska á launatengd gjöld, skatta eða vísitöluhækkanir. Merktu þá reiti gula og láttu mig fylla þá út.
Áætlun er aldrei betri en forsendurnar. Berðu hana undir bókara, sérstaklega launatengd gjöld og skatta, áður en þú leggur hana fyrir banka eða fjárfesta.
Láttu gervigreindina fara í gegnum vefinn eins og nýr gestur og skila forgangsraðaðri töflu yfir það sem er óljóst, vantar eða stendur í vegi fyrir því að fólk hafi samband eða kaupi.
Vefurinn okkar er [slóð]. Við erum [tegund fyrirtækis] og viljum að gestir [bóki tíma / sendi fyrirspurn / kaupi í vefverslun]. Dæmigerður viðskiptavinur er [lýsing].
Skoðaðu forsíðuna og helstu undirsíður eins og gestur sem þekkir okkur ekki:
1. Segðu mér, út frá forsíðunni einni, hvað við gerum, fyrir hverja og hvað gesturinn á að gera næst. Ef það er óljóst, segðu það.
2. Fylgdu leiðinni að [bókun / fyrirspurn / kaupum], skráðu hvert skref og hvar gestur gæti gefist upp.
3. Listaðu upplýsingar sem vantar eða erfitt er að finna: verð, opnunartíma, staðsetningu, skilmála og hver stendur á bak við reksturinn.
4. Bentu á málvillur, ensku innan um íslenskuna og texta sem segir ekkert.
Skilaðu töflu með tíu úrbótum í forgangsröð: hvað, á hvaða síðu, hvers vegna og tillaga að nýjum texta þar sem við á.
Vitnaðu orðrétt í vefinn. Ef þú komst ekki inn á síðu, segðu það í stað þess að geta þér til um efnið. Ekki fylla út eða senda nein eyðublöð.