Rekstur og smáfyrirtæki
Gerðu gátlista yfir það sem þarf til að hefja rekstur
Lýstu því sem þú ætlar að gera og fáðu skrefin í réttri röð: rekstrarform, skráningar, leyfi og spurningarnar sem bókari þarf að svara.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég ætla að hefja rekstur: [lýsing] á [staður]. Ég reikna með um [upphæð] kr. í tekjur fyrsta árið og verð [ein(n) / með starfsfólk]. Ég er [í launaðri vinnu samhliða / ekki í annarri vinnu]. 1. Berðu saman að reka þetta á eigin kennitölu og í einkahlutafélagi: ábyrgð, kostnað, umsýslu og skattlagningu í grófum dráttum. 2. Gerðu gátlista í tímaröð yfir skráningar og tilkynningar sem gætu átt við mig, til dæmis hjá fyrirtækjaskrá, á VSK-skrá og launagreiðendaskrá, og yfir leyfi sem rekstur af þessu tagi þarf. 3. Settu við hvert atriði slóð á síðu viðkomandi stofnunar þar sem reglan eða eyðublaðið er. 4. Skrifaðu lista yfir spurningar sem ég á að fara með til bókara. Ekki nefna upphæðir, hlutföll eða fresti nema þú getir vísað á síðuna þar sem það stendur. Ef þú ert ekki viss, segðu það.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Reglur um skráningu, skatta og leyfi breytast. Notaðu listann til að undirbúa þig og fáðu hann staðfestan hjá Skattinum eða bókara áður en þú byrjar.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.
-
ChatGPT Agent Vafrar og vinnur verk í skrefum.