Haltu utan um allt sem þarf að ganga frá við skilnað eða sambúðarslit
Fáðu á hreint hvaða skref eiga við ykkur samkvæmt vef sýslumanna og island.is, hvort sem þið eruð gift eða í sambúð og eigið börn eða ekki. Þú færð líka töflu yfir sameiginleg lán, reikninga og eignir, lista yfir allt sem þarf að tilkynna eða færa og spurningar til að fara með til sýslumanns, ráðgjafa eða lögmanns.
Svona gerir þú
- Taktu saman yfirlit yfir lán, reikninga og eignir úr netbankanum, án reikningsnúmera og kennitalna.
- Límdu skipunina inn í Claude, ChatGPT eða Gemini og hafðu vefleit virka.
- Farðu með tímalínuna og spurningarnar til sýslumanns eða ráðgjafa. Ef þið eruð sammála um flest getur verið gott að fara saman yfir töfluna.
Við [maki eða sambúðarmaki] erum að [skilja / slíta sambúð]. Við [erum gift síðan [ár] / höfum verið í [skráðri / óskráðri] sambúð síðan [ár]] og eigum [fjöldi og aldur barna, eða engin börn saman]. Við búum í [eigin íbúð / leiguíbúð] í [sveitarfélag] og hún er á nafni [hvers]. [Við erum sammála um flest / Við erum ósammála um [til dæmis búsetu barnanna eða íbúðina]]. Þetta veit ég um sameiginleg fjármál: [listi yfir lán, reikninga, bíla, tryggingar og áskriftir, án reikningsnúmera og kennitalna]. 1. Finndu á vef sýslumanna og island.is hvaða skref eiga við okkar stöðu, í hvaða röð þau eru tekin og hvaða gögn fylgja hverju þeirra. Fjallaðu um forsjá, lögheimili og umgengni barnanna, framfærslu þeirra og skiptingu eigna og skulda eftir því sem við á. Segðu mér líka hvort sáttameðferð eða ráðgjöf er skylda eða í boði í okkar stöðu. Vísaðu í slóð við hvert atriði. 2. Settu sameiginleg fjármál upp í töflu: hvað er á nafni hvors, hvað er sameiginlegt, hvað þarf að skipta, færa eða segja upp og hvaða spurningum við þurfum að svara saman. Merktu við það sem þarf að bera undir bankann. 3. Gerðu lista yfir allt sem þarf að tilkynna, færa eða breyta, til dæmis lögheimili, skóla og leikskóla, tryggingar, rafmagn og hita, fjarskipti, áskriftir og sameiginlega aðganga, og segðu hvar hvert atriði er gert. 4. Settu þetta upp sem tímalínu frá deginum í dag og merktu sérstaklega það sem þarf að gera fyrst. 5. Skrifaðu spurningar til að fara með til sýslumanns, ráðgjafa eða lögmanns, og segðu mér hvar ég finn ókeypis eða ódýra ráðgjöf ef hún er í boði. Taktu ekki afstöðu með öðru okkar. Giskaðu ekki á lög, upphæðir eða fresti og segðu mér ef eitthvað finnst ekki á opinberum vef. Sendu ekkert fyrir mig.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Þetta er yfirlit til undirbúnings, ekki lögfræðiráðgjöf. Sýslumaður, ráðgjafi eða lögmaður staðfestir hvað á við í ykkar tilviki. Settu hvorki kennitölur, reikningsnúmer né viðkvæmar upplýsingar um hitt foreldrið eða börnin inn í verkfærið; þess þarf ekki til að fá yfirlitið.