Undirbúðu aksturinn til fjölskyldunnar yfir hátíðarnar
Fáðu áætlun fyrir ferðina milli landshluta um jól eða áramót: hvenær best er að leggja af stað miðað við spá og færð, stopp á leiðinni, hvað á að vera í bílnum, varaáætlun ef leiðin lokast og skilaboð til þeirra sem bíða.
Svona gerir þú
- Keyrðu skipunina nokkrum dögum fyrir ferð til að fá tímaáætlun, gátlista og varaáætlun á hreint.
- Keyrðu hana aftur daginn fyrir brottför með vefleit virka, þegar spáin er orðin áreiðanlegri.
- Athugaðu sjálf(ur) umferdin.is og vedur.is rétt áður en þið leggið af stað, því færð getur breyst á stuttum tíma.
Við ætlum að keyra frá [staður] til [staður] [dagsetning] og til baka [dagsetning]. Í bílnum verða [fjöldi fullorðinna, börn og aldur þeirra, gæludýr ef við á]. Bíllinn er [tegund, rafbíll / bensín / dísil, með fjórhjóladrifi eða ekki] á [nagladekkjum / ónegldum vetrardekkjum / heilsársdekkjum]. Við viljum ekki keyra lengur en [fjöldi] klst. í einu [og þurfum að vera komin fyrir [tími og dagur]]. 1. Lýstu leiðinni og þeim köflum hennar sem geta verið varasamir að vetri, til dæmis heiðum og fjallvegum, og segðu mér hvar ég sé færð, lokanir og vefmyndavélar á umferdin.is og veðurspá og viðvaranir á vedur.is fyrir hvern kafla. 2. Ef ferðin er innan fárra daga, skoðaðu spána og leggðu til hvenær best er að leggja af stað, með rökum. Ef spáin nær ekki svo langt, segðu það og hvenær ég ætti að athuga aftur. 3. Gerðu tímaáætlun með stoppum fyrir mat og hvíld [og hleðslu, með hleðslustöðvum á leiðinni], og gerðu ráð fyrir hálku og myrkri. 4. Gerðu varaáætlun: hvað ég geri ef leiðin lokast eða spáin versnar, til dæmis að fresta brottför um dag, og hvar mætti gista á leiðinni. 5. Gerðu gátlista yfir það sem á að vera í bílnum að vetri og það sem börnin þurfa á leiðinni. 6. Skrifaðu stutt skilaboð til þeirra sem taka á móti okkur, með áætluðum komutíma og hvenær við látum vita af okkur á leiðinni. Fullyrtu ekkert um færð eða veður sem þú hefur ekki séð á vedur.is eða umferdin.is og segðu frá hvaða tíma upplýsingarnar eru. Ráðleggðu mér aldrei að fara inn á lokaðan veg.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Gervigreindin getur lesið gamla spá eða misskilið hana. Treystu alltaf nýjustu upplýsingum á vedur.is og umferdin.is og farðu aldrei inn á lokaðan veg.