Vinna og skrifstofa
Breyttu hugmynd í einnar síðu minnisblað til ákvörðunar
Fáðu punktana þína setta upp eins og stjórnendur vilja lesa þá: tillagan efst, svo valkostir, kostnaður, áhætta og hvað gerist ef ekkert er gert.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég þarf að leggja tillögu fyrir [yfirmann / framkvæmdastjórn / stjórn]. Hér eru punktarnir mínir: [texti]. Skrifaðu minnisblað, að hámarki ein síða: - Tillagan í tveimur setningum efst. - Bakgrunnur í stuttu máli. - Tveir til þrír valkostir, þar á meðal að gera ekkert, með kostum, göllum og kostnaði. - Áhætta og hvað þarf til að tillagan gangi upp. - Hvað ég bið viðtakandann að ákveða og fyrir hvaða tíma. Notaðu aðeins tölur sem ég gef upp. Þar sem tölu eða rök vantar, skrifaðu [VANTAR] og spurðu mig um það í lokin.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.