Forritun og sjálfvirkni
Sæktu gögnin þín sjálfkrafa úr kerfi sem þú notar
Láttu forritunarfulltrúa lesa skjölun vefþjónustunnar hjá bókhalds-, bókunar- eða sölukerfinu þínu og skrifa litla skriftu sem sækir gögnin reglulega.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude Code og veldu möppuna sem á að vinna í. Taktu afrit af henni fyrst ef skrárnar skipta máli.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Farðu yfir áætlunina sem hann leggur fram áður en þú leyfir honum að breyta nokkru.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég nota [kerfi] og vil sækja [gögn, t.d. reikninga síðasta mánaðar eða bókanir vikunnar] sjálfkrafa í CSV-skrá. 1. Finndu opinbera skjölun vefþjónustunnar, lestu hana og segðu mér hvaða endapunkta við þurfum, hvernig auðkenning fer fram og hvaða takmörk eru á fjölda fyrirspurna. Vísaðu í slóðir. 2. Skrifaðu skriftu sem les aðgangslykilinn úr umhverfisbreytu. Biddu mig aldrei um að líma lykilinn í spjallið og skrifaðu hann hvorki í kóðann né í atvikaskrá. 3. Byrjaðu á einni fyrirspurn sem aðeins les gögn, sýndu mér svarið og bíddu eftir samþykki. 4. Bættu svo við síðuskiptingu, villumeðhöndlun og vistun í CSV. 5. Skrifaðu leiðbeiningar um hvernig ég læt skriftuna keyra sjálfkrafa á föstum tíma. Notaðu eingöngu lesaðgerðir. Ekki stofna, breyta eða eyða neinu í kerfinu og giskaðu ekki á endapunkta sem eru ekki í skjöluninni.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Búðu til aðgangslykil sem hefur eingöngu lesréttindi, ef kerfið leyfir það, og geymdu hann utan kóðans.
Verkfæri sem henta
-
Claude Code Skrifar og keyrir kóða.
-
Claude Spjall, skjöl og greining.