Rekstur og smáfyrirtæki
Sjáðu hvað selst, hvenær og hvað skilar mestu
Flyttu sölugögn út úr kassakerfinu eða vefversluninni og fáðu greiningu eftir vörum, vikudögum og tímum dags sem nýtist við ákvarðanir um opnunartíma, innkaup og verð.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Hér er útflutningur úr [kassakerfi / vefverslun] fyrir [tímabil]: dagsetning, tími, vara, magn, verð og afsláttur. Innkaupsverð [fylgir / fylgir ekki]. 1. Lýstu gögnunum fyrst: tímabili, fjölda færslna, eyðum og því sem lítur út eins og villur. 2. Sýndu sölu eftir vikudögum og klukkustundum og bentu á tíma þar sem lítið selst miðað við opnunartíma. 3. Raðaðu vörum eftir tekjum og, ef innkaupsverð fylgir, eftir framlegð. Merktu vörur sem seljast nánast ekkert. 4. Sýndu hvaða vörur eru oft keyptar saman. 5. Leggðu til þrennt sem ég gæti prófað næsta mánuðinn og hvernig ég mæli hvort það virkar. Sýndu útreikninga og taktu fram þar sem gögnin eru of lítil til að draga ályktun. Ef nöfn eða kennitölur viðskiptavina eru í skránni, notaðu þau ekki.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Claude Code Skrifar og keyrir kóða.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.