Undirbúðu starfsmannasamtölin við fólkið sem þú stýrir
Ef þú ert stjórnandi eða rekur fyrirtæki með starfsfólki: taktu saman markmið síðasta samtals, þína eigin minnispunkta frá árinu og sjálfsmat starfsmannsins, og fáðu fyrir hvert samtal eina síðu með því sem gekk vel, því sem má bæta, dæmum sem styðja hvort tveggja og spurningum sem opna samtalið.
Svona gerir þú
- Safnaðu saman minnispunktum ársins, markmiðum úr síðasta samtali og sjálfsmati starfsmannsins ef það er til.
- Taktu út nöfn, kennitölur og allt sem varðar heilsu eða einkalíf, og notaðu verkfæri sem vinnustaðurinn hefur samþykkt.
- Lestu síðuna yfir og skrifaðu lokaútgáfuna með þínum eigin orðum. Samtalið er þitt, ekki gervigreindarinnar.
Ég er [starfsheiti, til dæmis verkstjóri, deildarstjóri eða eigandi] og held starfsmannasamtöl við [fjöldi] starfsmenn [tímabil]. Við notum [ramma eða eyðublað vinnustaðarins: límdu hann inn / engan fastan ramma]. Ég tek eitt samtal fyrir í einu. Hér heitir starfsmaðurinn [Starfsmaður A] og starfar sem [starfsheiti]. Þetta liggur fyrir: - Markmið úr síðasta samtali: [markmið, eða „engin skráð“] - Mínir minnispunktar frá árinu: [til dæmis verkefni, endurgjöf frá viðskiptavinum og samstarfsfólki, og það sem gekk vel eða illa] - Það sem starfsmaðurinn sendi sjálfur fyrir samtalið: [sjálfsmat eða svör, ef til eru] 1. Berðu markmiðin saman við punktana og sjálfsmatið og segðu hvað virðist hafa náðst, hvað er í vinnslu og hvað sést ekki í gögnunum. Byggðu aðeins á því sem stendur hér og segðu mér hvað vantar frekar en að fylla í eyðurnar. 2. Taktu saman þrjú til fimm atriði sem gengu vel og tvö til þrjú sem má bæta, og nefndu dæmi úr punktunum við hvert þeirra. Orðaðu það sem má bæta sem verk eða hegðun, ekki sem persónueinkenni. 3. Bentu mér á hvar mitt mat og sjálfsmat starfsmannsins stangast á, svo ég geti spurt út í það í samtalinu. 4. Skrifaðu sex til átta opnar spurningar, til dæmis um álag, hvað starfsmaðurinn vill læra og hvað ég get gert betur sem stjórnandi. 5. Stingdu upp á tveimur til þremur skýrum markmiðum fyrir næsta tímabil sem hægt er að fylgja eftir, og settu allt upp á eina síðu sem ég get haft fyrir framan mig í samtalinu. Nefndu ekki heilsufar, einkalíf eða neitt sem ég hef ekki skrifað hér, og leggðu hvorki til launabreytingar né aðrar ákvarðanir um starfið. Þær tek ég sjálf(ur).
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Minnispunktar um starfsfólk eru persónuupplýsingar. Fylgdu reglum vinnustaðarins um hvaða verkfæri má nota, settu hvorki nöfn né viðkvæmar upplýsingar inn í verkfærið og notaðu drögin aldrei óbreytt. Matið er þitt og þú berð ábyrgð á því sem sagt er í samtalinu.
Byggt á: AIHR
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.