leyst.is
Allar hugmyndir

Forritun og sjálfvirkni

Berðu saman tvo lista og finndu hvað vantar á hvorn

Fyrir félagaskrá og innborganir, skráningar og mætingu eða pantanir og afhendingar: fáðu töflu yfir það sem stemmir, það sem vantar á hvorn lista og vafatilvik þar sem nöfn eru skrifuð á ólíkan hátt, án þess að fara línu fyrir línu yfir hvort tveggja.

Claude ChatGPT Microsoft Copilot Gemini Auðvelt

Svona gerir þú

  1. Taktu afrit af báðum skrám og fjarlægðu dálka sem ekki þarf í verkið, til dæmis kennitölur og heimilisföng.
  2. Hladdu skránum upp í Claude, ChatGPT eða Gemini, eða opnaðu þær í Excel með Copilot, og límdu skipunina inn.
  3. Farðu sjálf(ur) yfir vafatilvikin og athugaðu nokkrar línur úr hinum flokkunum áður en þú sendir nokkrum áminningu.
skipun
Ég er með tvo lista sem eiga að passa saman: [listi A, til dæmis félagaskrá, skráningar á námskeið eða pantanir] og [listi B, til dæmis innborganir úr bankayfirliti, mætingarlista eða afhendingar]. Þeir koma úr [hvaðan, til dæmis Excel-skjali, útflutningi úr kerfi og bankayfirliti í CSV] og eru um [fjöldi] línur hvor. Ég vil vita [hvað, til dæmis hverjir hafa ekki greitt, hverjir mættu án þess að skrá sig eða hvað var pantað en ekki afhent].

1. Lýstu dálkunum í báðum listum og leggðu til hvaða dálka á að para saman, til dæmis nafn, netfang, pöntunarnúmer eða upphæð og skýringu. Spurðu mig áður en þú byrjar ef það er óljóst.
2. Paraðu listana saman. Taktu tillit til þess að nöfn geta verið skrifuð á ólíkan hátt, til dæmis með eða án millinafns, með brengluðum íslenskum stöfum eða stytt í skýringu á millifærslu, og að einn getur greitt fyrir fleiri en einn.
3. Skilaðu nýju skjali með fjórum blöðum: það sem stemmir, það sem er aðeins á lista A, það sem er aðeins á lista B, og vafatilvik þar sem líklegt er að línur eigi saman en þú ert ekki viss. Skrifaðu við hvert vafatilvik á hverju þú byggir.
4. Ef upphæðir fylgja, berðu þær saman og merktu þar sem munar, til dæmis hálfgreidd gjöld eða tvígreiðslur.
5. Endaðu á stuttri samantekt með fjölda í hverjum flokki.

Breyttu ekki upprunalegu skjölunum, eyddu engum línum og paraðu ekkert saman sem þú getur ekki rökstutt.

Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.

Listar yfir félagsmenn, viðskiptavini eða starfsfólk eru persónuupplýsingar. Notaðu aðeins þá dálka sem þarf, fjarlægðu kennitölur og notaðu aðgang á vegum vinnustaðarins eða félagsins ef hann er til.

Verkfæri sem henta

Póstlisti

5 hugmyndir í pósthólfið á hverjum morgni

Einn stuttur póstur kl. 7. Skipunin fylgir hverri hugmynd. Sjá síðasta póst

5 hugmyndir á hverjum morgni

5 hlutir sem gervigreind getur leyst fyrir þig, í pósthólfið kl. 7.

Einn stuttur póstur á dag. Skipunin fylgir hverri hugmynd, svo þú prófar á fimm mínútum. Sjá síðasta póst

Ókeypis. Afskráning með einum smelli. Persónuvernd

Sendu inn hugmynd

Fékkstu gervigreind til að gera eitthvað gagnlegt, eða sástu einhvern gera það? Segðu okkur frá. Við lesum allt yfir áður en það birtist og getum þín ef þú vilt.