Rekstur og smáfyrirtæki
Reiknaðu hvað þú þarft að rukka á tímann
Fyrir einyrkja og verktaka: farðu úr laununum sem þú vilt hafa yfir í útselt tímagjald, að teknu tilliti til gjalda, frídaga og tíma sem enginn borgar fyrir.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég er sjálfstætt starfandi [starfsgrein] og vil reikna út útselt tímagjald. Ég vil hafa um [upphæð] kr. í laun á mánuði fyrir skatt. Fastur kostnaður á mánuði: [húsnæði, tæki, hugbúnaður, tryggingar, bókari, bíll]. Ég reikna með [X] vikum í frí og veikindi á ári og að [X]% vinnutímans fari í annað en útselda vinnu. 1. Spurðu mig þess sem vantar. 2. Listaðu gjöld sem launþegi sér ekki en ég þarf að standa skil á, til dæmis tryggingagjald og iðgjöld í lífeyrissjóð. Flettu hlutföllunum upp á vef Skattsins og lífeyrissjóðsins míns og settu slóð við hverja tölu. Ef þú finnur tölu ekki, skildu reitinn eftir auðan. 3. Settu útreikninginn upp í töflu, skref fyrir skref, og sýndu tímagjald án VSK og með. 4. Sýndu hvernig tímagjaldið breytist ef ég sel fleiri eða færri tíma á mánuði.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Útreikningurinn er til viðmiðunar. Berðu forsendurnar, sérstaklega gjöld og reiknað endurgjald, undir bókara áður en þú ákveður verð.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.